Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Seljendur eru tilbúnir að skoða skipti á nýlegri 3ja herbergja íbúð.Endaíbúð á 5. hæð í lyftuhúsi-stórar suðursvalir. Rúmgóð og björt 125,8 fm íbúð með 3 svefnherbergjum, geymslu og þvottahúsi innan íbúðar. Íbúðin er vel skipulögð. Forstofa með fataskáp. Geymsla inn af gangi með glugga. 3 svefnherbergi, öll með fataskáp. Baðherbergi flísalagt, baðkar og ný innrétting á baði. Þvottahús með skolvaski. Eldhús og stofa í stóru alrými, tengi fyror uppþvottavél í innréttingu. Úr stofu er gengið út á stórar tæplega 12 fm suðursvalir. Í sameign er hjóla og vagnageymsla. Hleðslustöð á bílastæði.
Seljendur eru tilbúnir að skoða skipti á nýlegri 3ja herbergja íbúð. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]