Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Laus strax: Rúmgóð, björt og velskipulögð 81,2 fm 2ja herbergja íbúð á 1. hæð ( jarðhæð beint inn ) með sérinngangi og stórum suðursólpalli og skjólgirðingu. Húsið er tveggja hæða klætt að utan. Bílastæði til hliðar og fyrir framan hús.
Innan íbúðar er Eldhús og stofa í alrými og þaðan gengið út á sólpall. Stórt og rúmgott baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvottavél og skápur á baði. Stórt og rúmgott hjónaherbergi inn af stofu með góðu skápaplássi. Flísalögð geymsla inn af alrými. Í sameign á 1. hæð hússins er hjóla og vagnageymsla auk tæknirýmis.
Við bílastæði á lóð hafa íbúar aðgang að sameiginlegri hleðslustöð. Húsið er byggt úr forsteyptum einngum, klætt að utan með ljósri klæðningu byggingarár 2017.
Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings, fasteignasali sýnir íbúðina eftir samkomulagi. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]