Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Suðurgata Reykjavík 101- steinsnar frá Reykjavíkurtjörn.Sérstaklega falleg og sjarmerandi 4ra herbergja 108,6 fm íbúð á jarðhæð/kjallari með sérinngangi í þríbýlishúsi á þessum eftirsótta stað. Sér bílastæði upphitað á lóð fyrir íbúa hússins. Fallegur skjólgóður gróinn garður í hjarta Reykjavíkur.
Innan íbúðar eru 3 svefnherbergi. Forstofa flísalögð. Inn af forstofu er geymsla með flísum á gólfi og glugga. Baðherbergi flísalagt, sturta. Í alrými íbúðar er eldhús með sjarmerandi innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur, eldhús opið að hluta í rúmgóða stofa. Vel með farið parket á gólfum herbergja og alrýmis. Gólfhiti í gólfi baðherbergis ( kemur frá ofni í herbergi )
Endurbætur á íbúð :Baðherbergi flísalagt og hreinlætis-og blöndunartæki endurnýjuð árið 2018
Parket á gólfi slípað og lakkað 2024.
Rafmagnstafla húss hefur verið endurnýjuð, ( staðsett í þvottahúsi )
Skolplagnir undir gólfplötu hússins voru fóðraðar í kringum 2017.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni innangengt úr íbúð. Köld geymsla undir útitröppum efri hæðar sameiginleg. Bílastæði á lóð fyrir hverja íbúð, bílastæði þessarar íbúðar er næst húsi. Þann 15. júlí var skolplögn hússins mynduð og er í lagi ( myndefni til á skrifstofu )
Húsið er byggt af Pétri Ingimundarsyni byggingameistara árið 1931. Fyrsti eigandi hússins var Magnús Th.S.Blöndahl.Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]