Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Björt og rúmgóð 3ja herbergja 88,2 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með suðursvölum - Laus straxVel skipulögð 3ja herbergja 88,2 fm íbúð í snyrtilegu og rólegu 5. hæða fjölbýli sem var tekið í notkun haustið 2013.
Tvö herbergi með góðum fataskápum. Flísalagt baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og ljósri innréttingu. Sér þvottaherbergi í íbúð með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa eru samliggjandi með nýlegu parketi á gólfum og ljósri vandaðri innréttingu með útgengt út á suðursvalir. Gert ráð fyrir uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara ásamt aðgengi að hjóla og vagnageymslu. Nýlegt og vandað parket á íbúðin og ekki langt síðan íbúðin var máluð.
Vel við haldin sameign, lóð tyrfð og bílastæði malbikuð. Á síðasta aðalfundi var ákveðið að hreinsa og mála bílastæði sem var framkv. í maí sl. Búið er að setja upp hleðslustaura og verið að leggja lokahönd að tengja þá
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]