Skarðsbraut 3, 300 Akranes
59.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
114 m2
59.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
52.000.000
Fasteignamat
49.900.000

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Íbúðin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Falleg 4ra herbergja íbúð með tvískiptri 21,6 fm geymslu í kjallara. 3 svefnherbergi innan íbúðar, sérþvottahús og suðursvalir.
Falleg og mikið endurnýjuð 114,5 fm íbúð á 3 hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýli með suðursvölum. Húsið er klætt að utan. 
Íbúðin er skráð 92,9 fm 4ra herbergja íbúð auk 21,6 fm tvískiptri parketlagðri geymslu/leikherbergi með glugga alls 114,5 fm íbúð  á 3. hæð.
Innan íbúðar eru 3 svefnherbergi og flísalagt þvottahús. Gott skápapláss í hjónaherbergi. Forstofan er með stórum fataskáp.  Eldhús með fárra ára gamalli innréttingu og borðkrók, uppþvottavél fylgir með. 
Stofan er stór og rúmgóð, nýtist einnig sem borðstofa, úr stofu er gengið út á stórar flísalagðar suðursvalir með fallegu útsýni. Baðherbergi endurnýjað með innréttingu, og baðkari með sturtu. 
Sérgeymsla í kjallara 21.6 fm (skipt í leikherbergi og geymslu m/hillum). 


Endurbætur við sameign húss:
2002: Gluggar á suður, austur og vesturhlið að frátöldum stofugluggum. 
2007: neysluvatnslagnir í kjallara,
2010: neysluvatnslagnir úr kjallara í íbúðir
2015: Húsið álklætt og einangrað að utan, járn á þaki húss endurnýjað, svalahandrið máluð og glerlistar í stofugluggum endurnýjaðir.
2018: Hurðir í geymslum kjallara endurnýjaðar, snyrting í kjallara máluð og lagfærð, veggir og gólf málað. Sorptunnuaðstaða flutt úr kjallara út á lóð.
2021: Hleðslustaur uppsettur á lóð. 
2022: Stigahús máluð, skipt um teppi ljós og tengla.
2023: Stigahús, skipt um handrið.
2024. Loftistar settar í glugga í stigahúsum.
Um er að ræða mikið endurnýjað fjölbýli miðsvæðis á Akranesi. Stutt í alla grunnþjónustu.





      
 

Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.